Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 802 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2023 til 1. mars 2024 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 192 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 6 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 86 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 80 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2023 um 10% en íbúum þar fjölgaði um 6 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Kjósarhreppi eða 4,7% en þar fjölgaði íbúum um 13 einstaklinga frá 1. desember 2023. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 20 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 44 sveitarfélögum.
Landshlutar
Íbúum Höfuðborgarsvæðisins fjölgar mest, eða um 0,6% svo íbúum Suðurlands, eða um 0,5%. Íbúum á Norðurlandi vestra fækkar um 0,4% á tímabilinu.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 103 á tímabilinu eða um 2,8%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2023.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.