Alls voru 76.484 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. apríl sl. og fjölgaði þeim um 2.061 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 2,8%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 384 einstaklinga eða um 0,1%.
Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 364 eða 9,2% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 60 eða 11,2%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 139 og eru nú 25.751 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 384 einstaklinga eða um 0,1%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. apríl 2024 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2023.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.