Af þeim 4.870 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í þjóðskrá árið 2023 gengu 43% í hjúskap hjá Sýslumönnum, 33,9% hjá Þjóðkirkjunni, 12% hjá öðrum trú- og lífsskoðunarfélögum og 11% erlendis.
Fjöldi og samanburður við árið á undan
Tegund |
2023 |
2022 |
Breyting |
Þjóðkirkjan |
1.650 |
1.735 |
|
Sýslumaður |
2.095 |
1.542 |
|
Önnur trú- og lífsskoðunarfélög |
588 |
649 |
|
Erlendis |
537 |
874 |
|
Samtals: |
4.870 |
4.800 |
|
Samanburður milli landshluta
Þegar horft er á samanburð milli landshluta má sjá að miðað við hverja 1000 íbúa gengu flestir íbúar Austurlands í hjúskap á árinu 2023, þar á eftir íbúar Norðurlands vestra og loks íbúar Norðurlands eystra.
Þróun eftir árum
Alls gengu 1.749 einstaklingar sem skráðir eru í Þjóðskrá frá lögskilnaði á síðasta ári. Þar af gengu 1.625 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni, 100 gengu frá lögskilnaði sínum erlendis og 18 fyrir dómi.
Samanburður milli landshluta
Þegar horft er á samanburð milli landshluta má sjá að miðað hverja 1000 íbúa voru flestir lögskilnaðir á Suðurnesjum árið 2023, þar á eftir Norðurland vestra og loks Höfuðborgarsvæðið.
Þróun eftir árum
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá. Einstaklingur getur gengið í hjúskap með öðrum einstaklingi sem er ekki með kennitölu í Þjóðskrá og telur þá sá einstaklingur ekki með í tölfræðinni.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.