Fólk17. apríl 2024

Hjúskapur og lögskilnaður 2023

Árið 2023 stofnuðu 4.870 einstaklingar til hjúskapar í þjóðskrá sem er 1,5% fjölgun frá árinu áður. Flestir gengu í hjúskap hjá Sýslumanni, þar á eftir hjá Þjóðkirkjunni.
1.749 gengu frá lögskilnaði sem er 38,9% fjölgun frá árinu áður þegar 1.259 einstaklingar gengu frá lögskilnaði.

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá. Einstaklingur getur gengið í hjúskap með öðrum einstaklingi sem er ekki með kennitölu í Þjóðskrá og telur þá sá einstaklingur ekki með í tölfræðinni.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar