Alls skráðu 4.353 einstaklingar flutning innanlands í mars til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 9,7% þegar 3.967 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fjölgun uppá 8,2% þegar 4.022 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.823 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.512 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 460 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 243 innan landshlutans og 160 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 309 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 205 innan landshlutans en 82 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.512 | 76 | 59 | 21 | 9 | 40 | 17 | 89 | 2.823 |
Suðurnes | 160 | 243 | 15 | 8 | 2 | 26 | 3 | 3 | 460 |
Vesturland | 49 | 1 | 146 | 1 | 0 | 2 | 0 | 3 | 202 |
Vestfirðir | 12 | 0 | 0 | 26 | 0 | 0 | 0 | 4 | 42 |
Norðurland-Vestra | 14 | 1 | 1 | 2 | 37 | 4 | 0 | 3 | 62 |
Norðurland-Eystra | 40 | 2 | 0 | 0 | 2 | 267 | 9 | 9 | 329 |
Austurland | 25 | 4 | 9 | 3 | 0 | 5 | 76 | 4 | 126 |
Suðurland | 82 | 4 | 4 | 0 | 2 | 6 | 6 | 205 | 309 |
Alls til | 2.894 | 331 | 234 | 61 | 52 | 350 | 111 | 320 | 4.353 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.