Í apríl 2024 voru 6.438 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 5.181 vegabréf gefin út í apríl árið 2023.
Þá voru gefin út 757 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af 98% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars á þessu ári.
Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.