Alls voru 77.321 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí sl. og fjölgaði þeim um 2.898 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 3,9%.
Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 476 eða 12,1% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 144 eða 26,8%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 334 og eru nú 25.946 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 550 einstaklinga eða um 0,2%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. maí 2024 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2023.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.