Alls skráðu 4.393 einstaklingar flutning innanlands í apríl til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 1% þegar 4.353 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fjölgun uppá 22,4% þegar 3.590 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.761 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.451 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 538 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 342 innan landshlutans og 152 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 372 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 278 innan landshlutans en 61 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.451 | 72 | 51 | 17 | 17 | 42 | 14 | 97 | 2.761 |
Suðurnes | 152 | 342 | 8 | 9 | 5 | 7 | 0 | 15 | 538 |
Vesturland | 47 | 2 | 118 | 0 | 3 | 5 | 0 | 3 | 178 |
Vestfirðir | 16 | 1 | 1 | 47 | 0 | 0 | 0 | 2 | 67 |
Norðurland-Vestra | 14 | 2 | 1 | 0 | 32 | 2 | 1 | 0 | 52 |
Norðurland-Eystra | 29 | 4 | 2 | 1 | 5 | 264 | 7 | 8 | 320 |
Austurland | 18 | 0 | 3 | 3 | 0 | 13 | 68 | 0 | 105 |
Suðurland | 61 | 10 | 5 | 5 | 1 | 10 | 2 | 278 | 372 |
Alls til | 2.788 | 433 | 189 | 82 | 63 | 343 | 92 | 403 | 4.393 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.