Alls skráðu 5.164 einstaklingar flutning innanlands í maí til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 17,6% þegar 4.393 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fjölgun uppá 25,8% þegar 4.105 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 3.178 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.859 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 727 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 427 innan landshlutans og 216 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 451 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 327 innan landshlutans en 87 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.859 | 48 | 61 | 14 | 13 | 56 | 26 | 101 | 3.178 |
Suðurnes | 216 | 427 | 11 | 0 | 5 | 8 | 3 | 57 | 727 |
Vesturland | 47 | 0 | 119 | 5 | 1 | 3 | 1 | 4 | 180 |
Vestfirðir | 30 | 2 | 1 | 48 | 1 | 0 | 1 | 3 | 86 |
Norðurland-Vestra | 9 | 0 | 4 | 1 | 55 | 5 | 1 | 6 | 81 |
Norðurland-Eystra | 45 | 9 | 4 | 4 | 1 | 240 | 6 | 9 | 318 |
Austurland | 17 | 3 | 10 | 0 | 1 | 5 | 105 | 2 | 143 |
Suðurland | 87 | 9 | 3 | 5 | 3 | 13 | 4 | 327 | 451 |
Alls til | 3.310 | 498 | 213 | 77 | 80 | 330 | 147 | 509 | 5.164 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.