Þjóðskrá08. júlí 2024

Útgáfa vegabréfa og nafnskírteina í júní 2024

Í júní 2024 voru 6.060 ​almenn íslensk vegabréf gefin út og 464 nafnskírteini.

 

Í júní 2024 voru 6.060 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 7.229 vegabréf gefin út í júní árið 2023.

Þá voru gefin út 464 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af 95% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars á þessu ári.

Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar