Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.149 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2023 til 1. ágúst 2024 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 715 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 184 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 670 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 358 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2023 um 30,5% en íbúum þar fjölgaði um 18 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Vesturbyggð eða 21,1% en sveitarfélagið sameinaðist Tálknafjarðarhreppi. Af 63 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 11 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 52 sveitarfélögum.
Landshlutar
Íbúum Suðurlands fjölgar mest, eða um 3,1% svo íbúum Vesturlands, eða um 2,1% miðað við 1. des. sl. Íbúum Suðurnesja fækkar um 1,3% á tímabilinu eða um 427 íbúa.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 1.332 á tímabilinu eða um 35,8%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2023.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.