Alls voru 225.429 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. ágúst síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 473 síðan 1. desember 2023. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.438 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 10.013 skráða meðlimi.
Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Siðmennt eða um 167 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Samfélagi Ahmadiyya-múslima á Íslandi, eða um 30,6%.
Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 30.894 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 1,1% hækkun frá 1. des 2023. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 88.760 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2021-2023.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.