Fólk20. ágúst 2024

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. ágúst 2024

Alls voru 79.615 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. ágúst sl. og fjölgaði þeim um 5.192 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 7%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.228 einstaklinga eða um 0,4%.

 

Alls voru 79.615 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. ágúst sl. og fjölgaði þeim um 5.192 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 7%.

Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 676 eða 17,1% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 216 eða 40,1%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 893 og eru nú 26.505 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.228 einstaklinga eða um 0,4%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. ágúst 2024 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2023.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þróun erlendra ríkisborgara

 

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar