Fólk05. september 2024

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. september 2024

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.423 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2023 til 1. september 2024 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 784 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 183 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 828 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 435 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2023 um 32,2% en íbúum þar fjölgaði um 19 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Vesturbyggð eða 21,1% en sveitarfélagið sameinaðist Tálknafjarðarhreppi.  Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 8 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 54 sveitarfélögum.

Landshlutar

Íbúum Suðurlands fjölgar mest, eða um 3,2% svo íbúum Vesturlands, eða um 2,4% miðað við 1. des. sl. Íbúum Suðurnesja fækkar um 1,9% á tímabilinu eða um 608 íbúa.

Grindavík

Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 1.790 á tímabilinu eða um 48,1%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2023.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar