Fólk12. september 2024

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. september 2024

Alls voru 79.992 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. september sl. og fjölgaði þeim um 5.569 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 7,5%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.393 einstaklinga eða um 0,4%.

 

Alls voru 79.992 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. september sl. og fjölgaði þeim um 5.569 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 7,5%.

Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 744 eða 18,9% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 231 eða 42,9%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 941 og eru nú 26.553 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.393 einstaklinga eða um 0,4%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. september 2024 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2023.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þróun erlendra ríkisborgara

 

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar