Í september 2024 voru 4.317 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 3.832 vegabréf gefin út í september árið 2023.
Þá voru gefin út 422 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 97% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars á þessu ári.
Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.