Þjóðskrá11. október 2024

Hversu vinsælt er nafnið?

Þjóðskrá hefur gefið út nýtt talnaefni fyrir nöfn og vinsældir þeirra.

Þjóðskrá hefur gefið út nýtt talnaefni fyrir nöfn og vinsældir þeirra. Hægt er að slá inn fyrsta eiginnafn eða fyrsta og annað eiginnafn og sjá hversu margir bera nafnið. Hægt er að sjá samanburð og þróun allt aftur til ársins 2004.

Þjóðskrá hefur árlega gefið út talnaefni varðandi nöfn og hefur það talnaefni ávallt verið vinsælt og er þetta því skemmtileg viðbót.

Hægt er að sjá ýmsa tölfræði í Þjóðskrárgáttinni meðal annars varðandi íbúa landsins niður á sveitarfélög, íslenska ríkisborgara búsetta erlendis og fleira.

Flettu upp þínu nafni

Dæmi um leit eftir vinsælasta nafninu í fyrra


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar