Þjóðskrá hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2024 við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands.
Verkefnið um Jafnvægisvogina hefur þann tilgang að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi. Markmið Jafnvægisvogar FKA er að hlutföllin verði 40/60 í framkvæmdastjórnun.
Þjóðskrá er stolt að vera hluti af stofnunum og fyrirtækjum sem sína í verki vilja sinn til að auka jafnrétti í samfélaginu.
Frekari upplýsingar um Jafnvægisvogina má sjá hér: https://www.fka.is/verkefni/jafnvaegisvogin