Nú geta þau stjórnmálasamtök sem bjóða fram til Alþingiskosninga þann 30. nóvember 2024 fengið aðgang að kjörskrá í þeim kjördæmum þar sem þau bjóða fram. Sótt er um í gegnum umsóknareyðublað A-501 . Hægt er að velja um að fá kjörskrána á pdf eða Excel formi og verður hún send í gegnum Signet Transfer.
Spurningar varðandi kjörskrá skal senda á netfangið kosningar@skra.is