Alls voru 80.443 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. nóvember sl. og fjölgaði þeim um 6.020 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 8,1%.
Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 844 eða 21,4% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 253 eða 47%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 956 og eru nú 26.568 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.128 einstaklinga eða um 0,3%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. nóvember 2024 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2023.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.