Alls skráðu 5.400 einstaklingar flutning innanlands í október til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 0,7% þegar 5.438 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan aukning um 16,3% þegar 4.554 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 3.357 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.991 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 601 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 344 innan landshlutans og 196 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 469 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 343 innan landshlutans en 99 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.991 | 77 | 47 | 29 | 5 | 60 | 23 | 125 | 3.357 |
Suðurnes | 196 | 344 | 5 | 9 | 1 | 14 | 3 | 29 | 601 |
Vesturland | 51 | 0 | 143 | 3 | 0 | 8 | 7 | 1 | 213 |
Vestfirðir | 23 | 2 | 5 | 58 | 0 | 3 | 1 | 7 | 99 |
Norðurland-Vestra | 11 | 1 | 3 | 0 | 62 | 6 | 0 | 1 | 84 |
Norðurland-Eystra | 43 | 7 | 2 | 1 | 6 | 353 | 3 | 13 | 428 |
Austurland | 28 | 6 | 1 | 3 | 0 | 8 | 98 | 5 | 149 |
Suðurland | 99 | 11 | 5 | 2 | 4 | 2 | 3 | 343 | 469 |
Alls til | 3.442 | 448 | 211 | 105 | 78 | 454 | 138 | 524 | 5.400 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.