Í nóvember 2024 voru 3.685 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 3.271 vegabréf gefin út í nóvember árið 2023.
Þá voru gefin út 467 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 91% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars á þessu ári.
Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.