Alls voru 80.546 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. desember sl. og fjölgaði þeim um 6.123 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 8,2%.
Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 888 eða 22,5% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 272 eða 50,6%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 927 og eru nú 26.539 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.287 einstaklinga eða um 0,4%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2024 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2023.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.