Íbúum Reykjavíkurborgar fækkaði um 56 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. janúar 2025 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 47 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 11 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 60 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 5 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Árneshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Árneshrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 6,9% en íbúum þar fjölgaði um 4 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Fljótsdalshreppi og Kjósarhreppi eða um 2%. Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 27 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 35 sveitarfélögum.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 56 á tímabilinu eða um 4%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.