Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um elstu íbúa landsins. Í dag eru 44 einstaklingar 100 ára og eldri og þrír þeirra eiga maka á lífi. Elsti núlifandi einstaklingurinn búsettur á Íslandi er kona fædd árið 1917 og er því 107 ára. Hún er búsett á Höfuðborgarsvæðinu.
Aldursdreifing og kyn
Konur eru í meirihluta þeirra sem hafa náð 100 ára aldri eða alls 32 á meðan það eru 12 karlar sem eru 100 ára og eldri. Alls eru 24 einstaklingur 100 ára, þar af 18 konur og 6 karlar. Þeir einstaklingar sem eru yfir 100 ára eru alls 14 konur en 6 karlar. Ef við skoðum sérstaklega hvert ár þá eru 5 konur og 3 karlar 101 árs, 4 konur og 3 karlar eru 102 ára og 1 kona 103 ára. Þá eru 2 konur 104 ára, 1 kona 105 ára og ein kona er 107 ára.
Skipting eftir landshlutum
Þegar horft er á landshluta má sjá að flestir einstaklingar 100 ára og eldri eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu eða 30 talsins.
Fjöldi einstaklinga 100 ára og eldri eftir árum
Hér má sjá fjölda einstaklinga 100 ára og eldri 1. desember ár hvert eftir kyni frá 2005 til dagsins í dag.
Aldursbil landsmanna
Til að skoða samanburð á aldri einstaklinga sem eru búsettir á Íslandi er hægt að sjá fjölda einstaklinga eftir aldursbilum hér að neðan.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á einstaklingum búsettum á Íslandi þann 27.01.2025. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.