Í janúar 2025 voru 6.132 almenn íslensk vegabréf gefin út. Til samanburðar voru 5.048 vegabréf gefin út í janúar árið 2024.
Þá voru gefin út 451 íslensk nafnskírteini í sama mánuði, þar af um 93% sem ferðaskilríki. Útgáfa nýrra nafnskírteina hófst í mars sl.
Þjóðskrá annast útgáfu vegabréfa og nafnskírteina. Sýslumenn taka við umsóknum.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.