Þjóðskrá Íslands óskar eftir að ráða lögfræðing. Leitað er eftir einstaklingi sem er þjónustumiðaður og með hæfni til að leysa úr fjölbreyttum og krefjandi verkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Málsmeðferð stjórnsýslumála.
- Þátttaka í mótun löggjafar sem Þjóðskrá Íslands starfar eftir.
- Gerð umsagna til kæru- og eftirlitsstjórnvalda.
- Ráðgjöf innan sem utan stofnunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
- 2 ára eða lengri starfsreynsla er kostur.
- Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.
- Reynsla af gerð lagafrumvarpa er kostur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Góð almenn tölvukunnátta og skilningur á upplýsingatækni.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði og kunnátta í einu norðurlandamáli æskileg.
- Hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli.
Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert. Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar 2025 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.