Alls voru 80.776 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. febrúar sl. og fjölgaði þeim um 230 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 0,3%.
Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 87 eða 1,8% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 10 eða 1,2% frá 1. desember sl. Pólskum ríkisborgurum fækkaði um 89 og eru nú 26.450 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 260 einstaklinga eða um 0,1%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. febrúar 2025 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2024.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.