Fólk05. mars 2025

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. mars 2025

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 290 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. mars 2025 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 106 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 45 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 15 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 103 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Kjósarhreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kjósarhrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 3,9% en íbúum þar fjölgaði um 12 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Árneshreppi og Kaldraneshreppi eða um 3,4%.  Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 27 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 35 sveitarfélögum. 

Grindavík

Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 317 á tímabilinu eða um 22,5%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar