Fólk13. mars 2025

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. mars 2025

Alls voru 80.876 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. mars sl. og fjölgaði þeim um 330 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 0,4%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 358 einstaklinga eða um 0,1%.

 

Alls voru 80.876 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. mars sl. og fjölgaði þeim um 330 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 0,4%.

Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 113 eða 2,3% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 16 eða 2% frá 1. desember sl. Pólskum ríkisborgurum fækkaði um 128 og eru nú 26.411 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 358 einstaklinga eða um 0,1%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. mars 2025 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2024.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þróun erlendra ríkisborgara

 

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar