Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 259 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. apíl 2025 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 81 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 68 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 4 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 124 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Tjörneshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Tjörneshrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2024 um 10,9% en íbúum þar fjölgaði um 6 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Súðavíkurhreppi eða um 5,8%. Af 62 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 26 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 36 sveitarfélögum.
Grindavík
Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 391 á tímabilinu eða um 27,8%.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2024.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.