Þjóðskrá16. apríl 2025

Flutningur innanlands í mars 2025

Alls skráðu 4.769 einstaklingar flutning innanlands í mars til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 8,9% þegar 4.380 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fjölgun um 9,6% þegar 4.353 einstaklingar skráðu flutning innanlands.

Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 3.074 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.762  einstaklingar innan svæðisins.

Á Suðurnesjum fluttu 461 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 324 innan landshlutans og 108 til höfuðborgarsvæðisins.

Á Suðurlandi fluttu 375 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 294 innan landshlutans en 53 til höfuðborgarsvæðisins.

Flutningur innan og milli landshluta

Frá / til Höfuðborgar- svæðið Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurland-
vestra
Norðurland-
eystra
Austurland Suðurland Alls frá
Höfuðborgarsvæðið 2.762 87 59 17 7 25 6 111 3.074
Suðurnes 108 324 5 5 1 4 4 10 461
Vesturland 42 2 148 8 1 1 0 11 213
Vestfirðir 16 1 0 56 1 0 1 5 80
Norðurland-Vestra 12 1 8 0 43 0 0 2 66
Norðurland-Eystra 51 4 4 1 4 336 2 2 404
Austurland 11 5 1 1 2 4 59 13 96
Suðurland 53 2 5 1 2 13 5 294 375
Alls til 3.055 426 230 89 61 383 77 448 4.769

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar