Fólk28. apríl 2025

Hjúskapur og lögskilnaður 2024

Árið 2024 stofnuðu 5.546 einstaklingar til hjúskapar í þjóðskrá sem er 13,9% fjölgun frá árinu áður. Flestir gengu í hjúskap hjá Sýslumanni, þar á eftir hjá Þjóðkirkjunni.
1.780 gengu frá lögskilnaði sem er 1,8% fjölgun frá árinu áður þegar 1.749 einstaklingar gengu frá lögskilnaði.

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá. Einstaklingur getur gengið í hjúskap með öðrum einstaklingi sem er ekki með kennitölu í Þjóðskrá og telur þá sá einstaklingur ekki með í tölfræðinni.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar