Aðsetur vegna búsetu í atvinnuhúsnæði eða óviðráðanlegra atvika
Skráning aðseturs vegna búsetu í atvinnuhúsnæði eða óviðráðanlegra atvika (Grindavík)
Athugið
Aðsetur er tímabundin skráning sem hægt er að óska eftir þegar einstaklingur er tímabundið búsettur á öðrum stað en hann hefur fasta búsetu (lögheimili). Lögheimili helst óbreytt og heimilisfang tímabundinnar búsetu bætist við. Vegna búsetu í atvinnuhúsnæði á þetta þó ekki við þar sem að lögheimili verður ávallt ótilgreint í því sveitarfélagi sem búsetan er.
Sérstakt aðsetur - búseta í atvinnuhúsnæði
- á við aðsetur innanlands vegna búsetu í atvinnuhúsnæði þar sem ekki er heimilt að hafa skráð lögheimili
- 11. gr. a. laga um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018
Dæmi um sérstakt aðsetur:
Nafn: Jónasína Jónsson
Lögheimili: Ótilgreint, 101 Reykjavík
Aðsetur: Ármúli 50, 108 ReykjavíkAðsetur vegna óviðráðanlegra atvika (Grindavík)
- á við aðsetur innanlands vegna rýmingu húsnæðis vegna hættuástands
- 8. gr. a. laga um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018