Staðfesting á núverandi lögheimili fyrir alla á sama fjölskyldunúmeri. Búsetuvottorð - Pantað af lögaðila/fyrirtæki
Vottorð um núverandi lögheimili aðila sem hafa sama fjölskyldunúmer. Ef lögheimilið er á Íslandi þá er heimilisfang tilgreint, en ef lögheimilið er erlendis þá er einvörðungu tilgreint land.
Afhendingarmáti:Pósthólf Ísland.isBréfpósturSækja í Reykjavík
Afgreiðslutími:
Allt að 2 virkir dagar
Verð:3.100 kr
Athugið
Lögaðili/fyrirtæki sem pantar vottorð þarf að vera með umboð frá vottorðshafa, til að panta vottorð og fá það afhent. Afrit af umboðinu þarf að setja inn í vottorðapöntunina sjálfa.
Fjölskyldunúmer gefur ekki til kynna skyldleika heldur einungis að tilteknir aðilar búi saman á lögheimili þ.e. hjón eða sambúðarmakar auk barna yngri en 18 ára sem skráð eru á lögheimilið.
Nánari upplýsingar um vottorð