Staðfesting á lífi
Vottorð fyrir einstakling þar sem tilgreint er að viðkomandi sé á lífi. Auk upplýsinga um nöfn er kennitala, kyn og lögheimili tilgreint.
Afhendingarmáti:Sækja í Reykjavík
Afgreiðslutími:
Allt að 2 virkir dagar
Verð:3.000 kr
Athugið
Hafi einstaklingur ekki möguleika á því að sækja vottorðið í þjónustuver Þjóðskrár Íslands, þá er hægt að senda vottorðið á sýslumannsskrifstofur eða bæjarskrifstofur þangað sem einstaklingur getur sótt vottorðið.
Sé einstaklingur ófær um að sækja vottorðið sjálfur, s.s. vegna alvarlegra veikinda eða fötlunar, verður að framvísa staðfestingu þess efnis frá lækni eða viðeigandi stofnun.
Athugið að eins og staðan er núna er ekki hægt að fá Apostille vottun á rafræn vottorð