Vottorð um lögræði - Pantað af lögaðila/fyrirtæki

Á vottorðinu kemur fram hvort einstaklingur sé sviptur lögræði. Ef einstaklingurinn er sviptur lögræði þá kemur jafnframt hver er skipaður lögráðamaður og hvenær sviptingartíma lýkur.

Afhendingarmáti:Pósthólf Ísland.isBréfpósturSækja í Reykjavík
Afgreiðslutími:

Allt að 2 virkir dagar

Verð:3.000 kr

Athugið

Lögaðili/fyrirtæki sem pantar vottorð þarf að vera með umboð frá vottorðshafa, til að panta vottorð og fá það afhent. Afrit af umboðinu þarf að setja inn í vottorðapöntunina sjálfa.

Fyrirvari: Vottorð um lögræði eru einungis afhent einstaklingi sem óskar upplýsinga um sig sjálfan eða umboðsmanni sem hann hefur veitt sérstakt umboð, skipuðum lögráðamönnum og ráðamönnum vegna skjólstæðinga þeirra og opinberum aðilum vegna lögmæltra verkefna þeirra.

Nánari upplýsingar um vottorð