Staðfesting á núverandi lögheimili fyrir einn. Búsetuvottorð - Pantað af lögaðila/fyrirtæki

Vottorð um núverandi lögheimili einstaklings og skráð aðsetur ef við á. Ef viðkomandi er með lögheimili á Íslandi þá er heimilisfang tilgreint, en ef lögheimilið er erlendis þá er einvörðungu tilgreint land.

Afhendingarmáti:Pósthólf Ísland.isBréfpósturSækja í Reykjavík
Afgreiðslutími:

Allt að 2 virkir dagar

Verð:3.000 kr

Athugið

Lögaðili/fyrirtæki sem pantar vottorð þarf að vera með umboð frá vottorðshafa, til að panta vottorð og fá það afhent. Afrit af umboðinu þarf að setja inn í vottorðapöntunina sjálfa.

Vottorðið veitir ekki upplýsingar um hvenær flutt var á lögheimilið eða hvaðan. Vottorðið veitir ekki upplýsingar um tímabil aðseturs.

Nánari upplýsingar um vottorð