Trú- eða lífsskoðunarfélag - barna 15 ára og yngri

Skráning í trú- eða lífsskoðunarfélag eða skráning utan trú- eða lífsskoðunarfélags barna 15 ára og yngri

Afhendingarmáti

Staðfesting í tölvupósti

Verð:Gjaldfrjálst

Athugið

Ef forsjá barns er sameiginleg tilkynnir annar forsjáraðilinn breytinguna á þessu eyðublaði (A-281). Hinn forsjáraðilinn þarf að fylla út eyðublað A-282 (Trú-eða lífsskoðunarfélag – börn 15 ára og yngri – staðfesting) innan við viku frá því að beiðni um breytingu er send. Ef slík staðfesting berst ekki innan viku telst tilkynningin ófullnægjandi og skráningu í þjóðskrá hafnað og engin breyting því skráð.

Ef forsjáraðili fer einn með forsjá barns er breyting á skráningu eingöngu tilkynnt á þessu eyðublaði (A-281).

Börn á aldrinum 12-15 ára: Sérstakar reglur gilda um breytingu á skráningu á trú-eða lífsskoðunarfélagi barna á aldrinum 12-15 ára. Lögum samkvæmt þarf að leita álits barna á þessum aldri varðandi breytinguna.

Nánari upplýsingar verða sendar á þann aðila sem tilkynnir breytinguna.

Þeir sem ekki geta nýtt sér rafræna tilkynningu um skráningu í trú-eða lífsskoðunarfélag geta mætt í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands eða haft samband við þjónustuver.

Lagaheimild skráningar