Athugið!
Umsækjandi fær tölvupóst þegar nafnskírteini er tilbúið til afhendingar. Opið er í afgreiðslu Þjóðskrár í Borgartúni 21 frá kl. 10:00-15:00 á virkum dögum.

Hægt er að fá nafnskírteini afhent á þrjá vegu:

  • Sótt í afgreiðslu Þjóðskrár, Borgartúni 21, 105 Reykjavík
  • Sótt á umsóknarstað innanlands eða erlendis
  • Sent í ábyrgðarpósti í sérstökum tilfellum ef senda þarf erlendis.

Afgreiðslutími nafnskírteina er allt að 6 virkir dagar frá því að umsókn berst (umsóknardagur ekki talinn með). Helgar- og frídagar teljast ekki til virkra daga.

Ef afhenda á nafnskírteini á umsóknarstað eða heimilisfang erlendis þá bætist sendingartími þangað við afgreiðslutímann. Nafnskírteini eru einungis afhent á opnunartíma Þjóðskrár og biðjum við ykkur vinsamlegast um að virða það við starfsfólk okkar.

Ef umsækjandi getur ekki sótt nafnskírteini sjálfur á afhendingarstað getur hann veitt öðrum umboð. Forsjáraðili verður að sækja nafnskírteini barns sjálfur nema hann veiti öðrum umboð til þess.

Vinsamlegast athugið að ef nafnskírteini er ekki sótt innan 6 mánaða er því fargað.

Umsóknarferli

Upplýsingar um hvernig þú sækir um ný nafnskírteini.

Skoða nánar

Tegundir nafnskírteina

Nánari upplýsingar um tegundir nafnskírteina.

Skoða nánar

Afhending nafnskírteina

Þegar búið er að sækja um nafnskírteini, hvar getur þú sótt það?

Skoða nánar

Spurt og svarað

Spurt og svarað um nafnskírteini.

Skoða nánar