Aukavegabréf
Samþykki fyrir útgáfu aukavegabréfs má ekki vera eldri en 3 mánaða. Fyrir hvert nýtt vegabréf þarf að koma inn ný beiðni frá vinnuveitanda.
Í sérstökum tilvikum er Þjóðskrá heimilt að gefa út fleiri en eitt vegabréf fyrir sama einstakling. Aukavegabréf verður þó ekki gefið út nema umsækjandi sýni fram á brýna þörf fyrir fleiri en eitt vegabréf, t.d. vegna tíðra vinnuferða til landa sem krefjast vegabréfsáritana.
Ferlið:
Vinnuveitandi útbýr formlega beiðni um aukavegabréf fyrir viðkomandi starfsmann. Beiðnin þarf að vera á bréfsefni fyrirtækisins, undirrituð og dagsett. Þar þarf að gera grein fyrir og rökstyðja hvers vegna starfsmaður þarf á tveimur vegabréfum að halda.
- Vinnuveitandi sendir beiðnina sem skannað skjal í tölvupósti til vegabréfadeildar Þjóðskrár, skilriki@skra.is.
- Þegar beiðnin hefur verið afgreidd er svar sent á vinnuveitanda eða það netfang sem beiðnin kemur frá.
- Starfsmaður/einstaklingur fer á umsóknarstað og greiðir fyrir nýja umsókn (myndataka og fleira).
- Vegabréf framleitt.
Beiðnir um aukavegabréf sem ekki tengjast starfi fara í sama ferli en rökstuðningur, undirritaður og dagsettur, skal þá koma á bréfi frá einstaklingnum sjálfum.
Vegabréfið þitt
Þarftu/viltu vita gildistíma vegabréfsins þíns eða hvert númerið er á því?
Nánar á ísland.isGildistími vegabréfa
Gildistími vegabréfa er tíu ár frá umsóknardegi, en fimm ár fyrir börn yngri en 18 ára.
Skoða nánarLög og reglugerðir
Lög og reglugerðir um þjóðskrá, persónuskírteini og kjörskrá
Nánar um lög og reglugerðir