Gildistími vegabréfa
Gildistími vegabréfa er tíu ár frá umsóknardegi, en fimm ár fyrir börn yngri en 18 ára.
Ef eldra vegabréf er týnt/stolið skal nýtt vegabréf hafa sama gildistíma og fyrra vegabréf sem tilkynnt er glatað samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga um vegabréf.
Með heimild í 18. gr. reglugerðar um íslensk vegabréf, mega þeir sem tvisvar sinnum eða oftar hafa glatað vegabréfum sínum eiga von á að vegabréfum þeirra verði ákvarðaður 2ja ára eða skemmri gildistími á meðan hin glötuðu vegabréf eru í gildi.
Athugið að ekki er hægt að ferðast á skilríki sem tilkynnt hefur verið glatað en finnst aftur. Það verður gert upptækt á flugvelli erlendis og því mikilvægt að passa vel að vera með nýtt vegabréf.
Kröfur erlendra stjórnvalda
Athugið að Þjóðskrá hefur ekki upplýsingar um hvaða kröfur eru gerðar um gildistíma vegabréfa í hverju ríki fyrir sig.
Almenna reglan er:
Ríki innan EES og Schengen gera flest kröfu um að ferðaskilríki (Vegabréf og Nafnskírteini) gildi að minnsta kosti 3 mánuðum lengur en áætluð dvöl í viðkomandi ríki
Mörg ríki utan EES gera kröfu um að ferðaskilríki gildi að minnsta kosti 6 mánuðum lengur en áætluð dvöl í viðkomandi ríki og í einstaka tilfellum getur verið gerð krafa um enn lengri gildistíma.
Rétt er að kynna sér hvaða kröfur eru gerðar í þeim ríkjum sem heimsækja á.
Upplýsingar um vegabréfsáritanir má finna á vef utanríkisráðuneytis.
Vegabréfið þitt
Þarftu/viltu vita gildistíma vegabréfsins þíns eða hvert númerið er á því?
Nánar á ísland.isGildistími vegabréfa
Gildistími vegabréfa er tíu ár frá umsóknardegi, en fimm ár fyrir börn yngri en 18 ára.
Skoða nánarLög og reglugerðir
Lög og reglugerðir um þjóðskrá, persónuskírteini og kjörskrá
Nánar um lög og reglugerðir