Umsóknarferli erlendis
Sendiráð og aðalræðismenn Íslands sjá um umsóknarferli vegabréfa erlendis.
Íslendingar sem staddir eru erlendis og þurfa á vegabréfi að halda snúa sér til sendiráða eða aðalræðismanna Íslands. Listi yfir umsóknarstaði erlendis má finna hér
Ef umsækjandi á ekki opinbert skilríki vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini þarf umsækjandi ásamt tveim vitundarvottum að koma á umsóknarstað, fylla út sannvottun einstaklings og votta í viðurvist að umsækjandi sé sá sem hann segist vera. Vitundarvottar þurfa að hafa meðferðis opinber skilríki, vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini.
Það sem umsækjandi þarf að hafa með sér:
- Eldra vegabréf.
- Persónuskilríki með mynd, ökuskírteini eða nafnskírteini, ef eldra vegabréf er glatað.
- Greiðslu fyrir vegabréfið. Gjaldskrá vegabréfa.
Vegabréfið þitt
Þarftu/viltu vita gildistíma vegabréfsins þíns eða hvert númerið er á því?
Nánar á ísland.isGildistími vegabréfa
Gildistími vegabréfa er tíu ár frá umsóknardegi, en fimm ár fyrir börn yngri en 18 ára.
Skoða nánarLög og reglugerðir
Lög og reglugerðir um þjóðskrá, persónuskírteini og kjörskrá
Nánar um lög og reglugerðir