Umsóknarferli innanlands
Hægt er að forskrá umsókn um vegabréf hjá ísland.is.
Ferlið er einfalt
Skilyrði fyrir forskráningu er að gildistími núverandi vegabréfs sé minni en 6 mánuðir.
Eftir að forskráningu er lokið þurfa umsækjendur að mæta innan 30 daga í eigin persónu á umsóknarstað í myndatöku. Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að panta tíma í myndatöku.
Alltaf er hægt að mæta á umsóknarstað án forskráningar og sækja um.
Það sem umsækjandi þarf að hafa með sér:
- Eldra vegabréf
- Persónuskilríki með mynd, ökuskírteini eða nafnskírteini ef eldra vegabréf er glatað/týnt
- Greiðslu fyrir vegabréf ef umsókn er ekki forskráð. Gjaldskrá vegabréfa.
Ef umsækjandi á ekki opinbert skilríki líkt og vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini þarf umsækjandi ásamt tveim vitundarvottum að koma á umsóknarstað, fylla út sannvottun einstaklings og votta í viðurvist að umsækjandi sé sá sem hann segist vera. Vitundarvottar þurfa að hafa meðferðis opinber skilríki, vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini.
Vegabréfið þitt
Þarftu/viltu vita gildistíma vegabréfsins þíns eða hvert númerið er á því?
Nánar á ísland.isGildistími vegabréfa
Gildistími vegabréfa er tíu ár frá umsóknardegi, en fimm ár fyrir börn yngri en 18 ára.
Skoða nánarLög og reglugerðir
Lög og reglugerðir um þjóðskrá, persónuskírteini og kjörskrá
Nánar um lög og reglugerðir