07. febrúar 2023
Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í febrúar 2023
Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 601 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. febrúar 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 99 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fækkaði á tímabilinu um 18 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 159 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 88 íbúa. ...