Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2015 var 659. Heildarvelta nam 26,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 39,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli nam 18,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 5,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,3 milljörðum króna.
Þegar desember 2015 er borinn saman við nóvember 2015 fækkar kaupsamningum um 12,9% og velta minnkar um 9,8%. Í nóvember 2015 var 757 kaupsamningum þinglýst, velta nam 28,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 38,2 milljónir króna.
Þegar desember 2015 er borinn saman við desember 2014 fjölgar kaupsamningum um 44,2% og velta eykst um 40,7%. Í desember 2014 var 457 kaupsamningum þinglýst, velta nam 18,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 40,5 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 10 í desember 2015 eða 1,7% af öllum samningum. Í nóvember 2015 voru makaskiptasamningar 20 eða 2,8% af öllum samningum. Í desember 2014 voru makaskiptasamningar 16 eða 3,8% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.
Nóvember 2015 |
Desember 2015 |
Breyting |
|||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
||
Fjölbýli |
18.526 |
549 |
18.134 |
504 |
-2,1% |
-8,2% |
|
Sérbýli |
8.238 |
154 |
5.628 |
102 |
-31,7% |
-33,8% |
|
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
2.127 |
54 |
2.300 |
53 |
8,1% |
-1,9% |
|
Samtals |
28.892 |
757 |
26.062 |
659 |
-9,8% |
-12,9% |
|
Desember 2014 |
Desember 2015 |
Breyting |
|||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
||
Fjölbýli |
12.141 |
347 |
18.134 |
504 |
49,4% |
45,2% |
|
Sérbýli |
3.830 |
79 |
5.628 |
102 |
46,9% |
29,1% |
|
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
2.554 |
31 |
2.300 |
53 |
-9,9% |
71,0% |
|
Samtals |
18.525 |
457 |
26.062 |
659 |
40,7% |
44,2% |
|
|
Desember 2014
|
Nóvember 2015
|
Desember 2015
|
Breyting á milli ára
|
Breyting á milli mánaða
|
---|---|---|---|---|---|
Samningar
|
426
|
703
|
606
|
42,3%
|
-13,8%
|
Makaskipti eða lausafé
|
17
|
21
|
11
|
-35,3%
|
-47,6%
|
Makaskipti
|
16
|
20
|
10
|
-37,5%
|
-50,0%
|
Lausafé
|
1
|
1
|
1
|
-
|
-
|
Hlutfall makaskipta
|
3,8%
|
2,8%
|
1,7%
|
-
|
-
|
Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.