Þjóðskrá24. ágúst 2017

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í júlí 2017

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í júlí 2017 var 69 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 5.810 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 13 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 45 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 691 milljón króna.

Á sama tíma voru 43 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 3.881 milljón króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 2.493 milljónir króna. Af þessum samningum voru 5 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma var 21 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 533 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 368 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar