Þjóðskrá17. september 2018

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í september 2018

Alls voru 59,4% landsmanna skráðir í Þjóðkirkjuna þann 1. september sl. eða 270.190 manns

Alls voru 59,4% landsmanna skráðir í Þjóðkirkjuna þann 1. september sl. eða 270.190 manns. Frá 1. desember 2017 hefur fækkað um 2.310 eða 0,8% í Þjóðkirkjunni. Á sama tímabili fjölgaði mest í kaþólska söfnuðinum eða um 2,8% eða 530 manns. Í Siðmennt fjölgaði félagsmönnum um 15% eða 359 á sama tímabili. Félagsmönnum fækkaði hlutfallslega mest í trúfélaginu Zuism eða um 7,2% eða 148. Nú eru 1.900 manns skráðir í trúfélagið. 

Tæplega 60% landsmanna eru skráðir í Þjóðkirkjuna. Kaþólska kirkjan er það trúfélag sem  kemur næst með 4,3%. Rúmlega 4,5% þeirra sem skráðir eru í þjóðskrá eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga og fjölgaði þeim um 1.974 manns frá 1. desember síðastliðnum.  

Hér má sjá fjölda þeirra sem skráðir eru í trú- og lífsskoðunarfélög í þjóðskrá. 
Þjóðskrá Íslands birtir hér eftir upplýsingar mánaðalega um skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar