Fasteignir26. apríl 2021

Hverjir eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á 1. ársfjórðungi 2021?

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Kaupendum og seljendum er skipt eftir því hvort þeir eru fyrirtæki eða einstaklingar og gögnin sett fram eftir ársfjórðungum til þess að minnka sveiflur af völdum mismikilla viðskipta í einstökum mánuðum.

 
 

 

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum. Fyrstu kaupendur Frá október 2015 hefur Þjóðskrá Íslands birt upplýsingar 
um fjölda þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Taldir eru þinglýstir kaupsamningar og afsöl um íbúðarhúsnæði án undangengins 
kaupsamnings og eignayfirlýsingar. Ekki eru taldar með eignatilfærslur byggðar á erfðum eða öðru slíku. Heimild til lægri stimpilgjalda 
vegna fyrstu kaupa hefur verið til staðar frá 1. júlí 2008. Af þessum sökum eru engar þinglýstar upplýsingar um fyrstu kaup fyrir þann tíma. 
Rannsókn á því hvort um fyrstu kaup var að ræða fór fram við móttöku skjala til þinglýsingar hjá sýslumönnum. Upplýsingar um fyrstu kaup 1. ársfjórðung 2021.
 

  Fjöldi eignarheimilda Þar af fyrstu kaup  Hlutfall fyrstu kaup 
 Höfuðborgarsvæðið  2189  717  33%
 Suðurnes  277  84  30%
 Vesturland  143  46  32%
 Vestfirðir  51  14  27%
 Norðurland vestra  28  10  36%
 Norðurland eystra  240  61  25%
 Austurland  68  23  34%
 Suðurland  246  66  27%

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar