Fólk03. nóvember 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í nóvember 2022

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 3.461 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. nóvember 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 687 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 330 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.523 íbúa eða um 7,5%. Íbúum Seltjarnarnesbæjar fækkaði hins vegar um 57 eða 1,2%.

Fjölgar hlutfallslega mest í Kjósahrepp

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kjósahrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tíu mánuði eða um 15,1% en íbúum þar fjölgaði um 37 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Súðavíkurhreppi eða 11,7% en þar fjölgaði íbúum um 25. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 8 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 56 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum 

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum.  Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 6,2% sem er fjölgun um 1.793 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 4,0% á tímabilinu eða um 1.303 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 10.220 frá 1. desember 2021 sem er um 3,1%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2021.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar